Hjartarými – rými fyrir þig til að tengjast sjálfri/sjálfum þér betur🤎
✨ Það sem við gerum: Dagbókarskrif, þakklæti, núvitund og hugleiðsla sem styðja við sjálfsþekkingu og vellíðan.
✨ Andrúmsloftið: Hlýlegt og hvetjandi rými án pressu um að gera allt rétt eða vera stöðugt að bæta sig.
✨ Markmiðið: Að hjálpa þér að hlusta inn á við og skapa meiri velsæld í eigin lífi.
Í amstri hversdagsins þurfum við stundum ekki fleiri markmið, heldur rými til að staldra við, ígrunda og finna hvað skiptir okkur máli.
Í Hjartarými finnur þú:
- Dagbókaræfingar, þakklæti og núvitund.
- Hugleiðslur og innblástur.
- Námskeið og áskoranir í sjálfsrækt.
- Samfélag fólks sem vill auka sjálfsþekkingu sína.
Þú þarft enga fyrri reynslu, aðeins áhuga og vilja til að gefa þér rými. Hjartarými er fyrir bæði byrjendur og lengra komna.
Byrjaðu þar sem þú ert. Leyfðu þér að vaxa og dafna á þínum eigin forsendum.
Velkomin/n í Hjartarými 🤎