Við erum foreldrar þriggja ungra stráka, með þann fjórða á leiðinni. Við höfum, undanfarin ár, haft mikinn áhuga á heilbrigðum lífsstíl. Fyrstu árin í okkar heilsuvegferð einblíndum við að mestu á mikilvægi næringar en höfum á síðustu árum víkkað okkar sýn á því hvað það er sem stuðlar að heilbrigði.
Hér munum við því fjalla um heilbrigði barna frá ýmsum sjónarhornum. Við munum ræða um mataræði, útiveru, tækni, lyf, bóluefni, eiturefni í umhverfinu og margt fleira.
Við erum auðvitað ekki með öll svörin og því er von okkar einnig að hér myndist sterkt samfélag meðvitaðra foreldra sem hafa ástríðu fyrir því að ala upp heilbrigð börn.